Hakkaþon – græn færni og grænt hugarfar

The Prophet GreenADeN Hackathon snýr að grænni færni (green skills) og hefur eftirfarandi markmið: Að stuðla að þróun grænnar færni, að auka vitund og efla samstarf, aðlögun evrópskra stefnumiða í loftslagsmálum og að koma á grænu hugarfari (‘Green’ Mindset).

Hakkaþonið er hluti af GreenADeN samstarfsverkefninu, ‘Green Skills Adaptation and Development for Nordic Regions sem er fjármagnað af  Prosperous Future sjóðnum hjá Norrænu ráðherranefndinni. GreenADeN er þverfaglegt verkefni sem sameinar og samþættir þróun grænna færniþátta fyrir ýmsa markhópa og upplýsingatækniþróun. Samstarfsaðilar Þekkingarnetsins í Finnlandi stýra hakkaþoninu sem hefst kl. 06:00 mánudaginn 23. september. Því líkur 24. september kl. 14:40. Öll velkomin!