Í gær fengum við ánægjulega heimsókn frá hópi háskólanema við Susquehanna University í Pennsylvanínu. Ferðin er hluti af vettvangsnámi á vegum Svartárkots – menning, náttúra (SMN) og með hópnum voru tveir kennarar. Nemendurnir koma úr fjölbreyttum fræðigreinum, s.s. náttúruvísindum, umhverfisfræðum og skapandi skrifum og ferðin spannar nokkra daga á Norðurlandi þar sem hópurinn heimsækir m.a. Akureyri, Húsavík, Mývatnssveit og Bárðardal. Námskeiðið hefst með undirbúningsnámi í háskólanum þar sem nemendur kynnast fjölbreyttum viðfangsefnum tengdum menningu, samfélagi og náttúru Íslands. Að því loknu halda þau í tveggja vikna vettvangsferð um landið þar sem þau sækja fyrirlestra og heimsækja þekkta sögustaði og náttúruperlur.
Á Stéttinni fengu nemendur kynningu á starfsemi Þekkingarnets Þingeyinga, Hraðinu miðstöð nýsköpunar, Náttúrustofu Norðausturlands og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands. Þá sýndi Stefán Pétur nemendunum einnig aðstöðu og tækjabúnað Fab Lab Húsavík.
Nemendurnir vöktu athygli fyrir áhuga sinn, virka þátttöku og fjölbreyttar spurningar. Við þökkum þeim kærlega fyrir heimsóknina og hlökkum til að taka á móti fleiri fróðleiksfúsum gestum í framtíðinni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Chörlu Basran hjá Rannsóknasetri HÍ kynna rannsóknaraðferðir við greiningu á hljóðum sjávarspendýra fyrir hópnum.