Rannsókn um reynslu innflytjenda í Norðurþingi

Í sumar vinnur Þekkingarnet Þingeyinga að viðtalsrannsókn meðal innflytjenda í Norðurþingi með styrk frá Þróunarsjóði innflytjendamála. Rannsóknin snýst um það hvernig innflytjendur upplifa lífið í sveitarfélaginu, hvað hefur gengið vel og hvaða áskorunum þeir hafa mætt.

Markmiðið er að fá innsýn í reynslu fólks sem getur nýst til að bæta þjónustu við innflytjendur og stuðla að sterkara og samheldnara samfélagi. Rannsóknin er unnin í nánu samstarfi við Norðurþing og SSNE. Við leitum nú að þátttakendum í viðtöl. Viðtalið tekur um 30–45 mínútur og hægt er að ræða málin þar sem viðmælanda hentar best, á heimili, kaffihúsi, skrifstofu Þekkingarnetsins eða annars staðar. Viðtölin fara fram á íslensku, ensku eða móðurmáli viðmælanda með aðstoð túlks ef þörf krefur.

Ef þú ert innflytjandi í Norðurþingi og hefur áhuga á að deila þinni reynslu, eða þekkir einhvern sem gæti haft áhuga, má gjarnan senda póst á Aðalbjörn Jóhannsson sem sér um viðtölin: adalbjorn@hac.is

Við leggjum áherslu á að öll svör verða meðhöndluð í fyllsta trúnaði og ekki verður hægt að rekja niðurstöður til einstaklinga.

—–

This summer, Þekkingarnet Þingeyinga (Húsavík Academic Centre) is conducting an interview-based research project among immigrants living in Norðurþing, with support from the Development Fund for Immigrant Issues.

The research focuses on how immigrants experience life in the municipality—what has gone well and what challenges they have faced. The aim is to collect insights that can help improve services for immigrants and contribute to building a stronger, more inclusive community. The project is carried out in close collaboration with the municipality of Norðurþing and SSNE (The Association of Municipalities of Northeast Iceland).

We are currently looking for participants to be interviewed. Interviews take approximately 30–45 minutes and can be held wherever the participant prefers, at home, in a café, at the Þekkingarnet office, or elsewhere. The interviews can be conducted in Icelandic, English, or the participant’s native language, with an interpreter if needed.

If you are an immigrant living in Norðurþing and are willing to share your experience, or know someone who might be, please contact Aðalbjörn Jóhannsson, who is conducting the interviews: adalbjorn@hac.is

We emphasise that all responses will be treated with full confidentiality, and no results will be traceable to individuals.