Hinn 12. júní 2025 fór fram annar verkefnafundurinn í NICHE 2 verkefninu í Pescara á Ítalíu, í höfuðstöðvum IDP European Consultants, sem er einn af samstarfsaðilum verkefnisins. Á fundinum komu saman fulltrúar Þekkingarnetsins sem er verkefnastjóri og allra samstarfsaðila til að fara yfir framvindu verkefnisins, ræða helstu niðurstöður og skipuleggja næstu skref.
NICHE 2 verkefnið, með tilvísunarnúmerið 2024-1-IS01-KA220-VET-000243941, er samstarfsverkefni á sviði starfsmenntunar (VET), samfjármagnað af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins er að styrkja starfandi fagfólk á sviði óáþreifanlegs menningararfs með þekkingu og verkfærum sem þarf til að leiða græna og stafræna þróun í samræmi við markmið um sjálfbæra þróun. Byggt er á árangri fyrra NICHE verkefnisins, þar sem NICHE 2 stuðlar að hæfniuppbyggingu með sérsniðnu þjálfunarefni og hvetur til nýsköpunar og sjálfbærni í vistkerfi menningararfsins.
Á fundinum unnu samstarfsaðilarnir að þarfagreiningu verkefnisins (Verkefnispakki 2), sem er lykilþáttur til að greina áskoranir og þjálfunarþarfir sem fagfólk í menningararfsgeiranum stendur frammi fyrir við innleiðingu sjálfbærrar starfshátta. Þessi greining var framkvæmd bæði á landsvísu í samstarfslöndunum — Króatíu, Frakklandi, Spáni, Ítalíu og Íslandi — og á víðari evrópskum vettvangi. Í sameiningu greindu samstarfsaðilar niðurstöðurnar til að skilgreina þá hæfni og viðfangsefni sem munu móta NICHE 2 þjálfunarnámsefnið sem þróað verður á næstu mánuðum. Einkum kom í ljós að loftslagsbreytingar eru enn sjaldan hluti af stefnumótun á sviði menningararfs. Menningararfur er á sama tíma sjaldan nefndur í umræðum og stefnumótun um loftslagsmál, bæði á vettvangi ESB og innanlands í löndum samstarfsaðilanna.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós skort á ýmsum lykilþáttum sem hindra samræmingu óáþreifanlegs menningararfs við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG), einkum þau sem tengjast aðgerðum í loftslagsmálum (SDG 13), sjálfbærum borgum og samfélögum (SDG 11), og ábyrgri neyslu og framleiðslu (SDG 12):
- Margar menningarstofnanir skortir starfsfólk sem hefur þekkingu á sjálfbærniplönum, orkunýtni eða umhverfismati;
- Fagfólk er oft óvant tiltækum verkfærum eða nýjungum sem gætu stutt við sjálfbæra umbreytingu, að hluta til vegna veikra tengsla við nýsköpunarumhverfið og sprotafyrirtæki;
- Skortur er á leiðtogafærni og stjórnunarhæfni sem nauðsynleg er til að samþætta sjálfbærni inn í kjarnaferla og ákvarðanatöku innan menningargeirans;
- Skortur er á þekkingu varðandi umhverfiskostnað stafrænnar þróunar, sem getur staðið í vegi fyrir að ná markmiðum í kolefnislosun ef ekki er unnið á ábyrgan hátt að henni.
Á næstu mánuðum mun samstarfshópurinn kynna þessar niðurstöður fyrir hagaðilum í menningararfsgeiranum — sem eru aðalmarkhópur verkefnisins — til að hanna nýstárlegt þjálfunarefni í samstarfi sem koma á móts við raunverulegar þarfir þeirra. Að auki gegndi fundurinn því hlutverki að samhæfa frekari verkefnisþætti, þar á meðal þróun tengslanets sem stuðlar að sjálfbærni, miðlun og kynningarstefnu, næstu skef verkefnastjórnunarinnar og gæðastarfsferla.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu NICHE verkefnisins: https://www.nicheproject.eu/index.php eða með því að hafa samband við teymið með tölvupósti á netfangið: nicheproject2@gmail.com.