Hvaða námskeið vilt þú sjá hjá Þekkingarnetinu í vetur?

Við erum að skipuleggja veturinn og viljum bjóða upp á fjölbreytt og hagnýt námskeið – hvort sem er til að efla færni fyrir vinnumarkaðinn eða ykkar eigin ánægju

Í vetur verða námsleiðir áfram í boði og einnig íslenskunámskeið á starfsstöðum okkar og í fjarnámi. Sem dæmi um annað námssframboð hjá okkur þá vorum við að setja auglýsingu fyrir úrbeiningarnámskeið í loftið. Við bjóðum í fyrsta sinn upp á Líf og heilsu  með Dögg Stefáns í blöndu af stað- og fjarnámi á Þórshöfn og Mývatnssveit í október. En nú viljum við vita: hvaða námskeið myndir þú vilja sjá í haust og vetur? Kannski eitthvað nýtt sem hefur ekki verið í boði áður – tengt áhugamálum, skapandi námskeið eða hagnýt færni sem nýtist í daglegu lífi og starfi.

Þú getur sent inn tillögur hér eða með því að senda okkur tölvupóst á hac@hac.is.

Við hlökkum til að heyra frá þér! 🌟