Tilnefningar í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga

Í stjórn stofnunarinnar sitja fimm, tilnefnd til tveggja ára í senn. Samsetning stjórnar miðast við að hafa fulltrúa meginstarfssviða stofnunarinnar, þ.e. símenntunar, rannsókna, háskólaþjónustu og nýsköpunar auk svæðisbundins skólastarfs og nærsamfélagsins.  Stjórn Þekkingarnets Þingeyinga kallar eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnarsetu. Tilnefningar þurfa að berast á netfangið hildur@hac.is fyrir aðalfund, sem haldinn verður 27. apríl 2026. […]