Skýrsla og handbók um stöðu innflytjenda í Norðurþingi komin út
Út er komin ný skýrsla um stöðu og reynslu innflytjenda í Norðurþingi, ásamt handbók sem ætlað er að styðja sveitarfélög og stofnanir í móttöku og þjónustu við nýja íbúa. Verkefnið var unnið af Þekkingarneti Þingeyinga með styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála og byggir á viðtölum við innflytjendur með fjölbreyttan bakgrunn sem búa í sveitarfélaginu.
Rannsóknin veitir innsýn í upplifun fólks af búsetu, þjónustu, tungumáli, félagslegri þátttöku og möguleikum til áhrifa í nærsamfélaginu. Markmið hennar var að varpa ljósi á stöðu innflytjenda og greina hvaða þættir styðja við eða hindra þátttöku þeirra í samfélaginu.
Niðurstöðurnar sýna að margir meta búsetu sína í Norðurþingi jákvæða, en jafnframt koma fram áskoranir sem tengjast meðal annars tungumáli, upplýsingaflæði og aðgengi að þjónustu. Tungumálið reyndist lykilþáttur í aðlögun, þar sem margir þátttakendur lýstu því að þeir skildu íslensku betur en þeir gætu talað hana, sem hafði áhrif á sjálfstraust og virkni í daglegu lífi.
Þá undirstrika niðurstöðurnar mikilvægi fyrstu samskipta við samfélagið, aðgengilegra upplýsinga og stuðnings á fyrstu stigum. Félagsleg tengsl og þátttaka í atvinnulífi skipta einnig miklu máli, en sumir þátttakendur lýstu því að erfitt gæti verið að mynda tengsl utan vinnustaðar. Niðurstöðurnar veita mikilvægar vísbendingar um tækifæri til úrbóta og styðja við markvissari þróun þjónustu við innflytjendur á sveitarfélagsstigi.
Samhliða skýrslunni hefur verið gefin út hagnýt handbók sem byggir á samanburði fjögurra sveitarfélaga Mýrdalshrepps, Akureyrarbæ, Norðurþings og Reykjanesbæjar ásamt niðurstöðum rannsóknar á Norðurlandi eystra. Í handbókinni eru leiðbeiningar byggðar á ólíkum nálgunum í móttöku og þjónustu við nýja íbúa, með það að markmiði að greina hvað hefur reynst vel og hvar tækifæri liggja til úrbóta.
Handbókin inniheldur hagnýtar leiðbeiningar og tillögur sem sveitarfélög og stofnanir geta nýtt til að efla samræmda og aðgengilega þjónustu, bæta upplýsingagjöf og styrkja móttökuferli nýrra íbúa. Hún er þannig hugsuð sem verkfæri til að styðja við markvissari þróun þjónustu á grundvelli bæði rannsókna og raunverulegrar reynslu ólíkra sveitarfélaga.
Skýrsluna má finna hér og handbókina má finna hér.
Ensk útgáfa af skýrslu er hér