Hugmyndasmiðir úr Krubbi valdir í Norðansprotann

Þrír þátttakendur og hugmyndir þeirra úr hugmyndahraðhlaupinu Krubbi voru valdir inn í nýsköpunarkeppnina Norðansprotann og náðu þar eftirtektarverðum árangri! 

Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni sem hefur það að markmiði að draga fram áhugaverðustu hugmyndir Norðurlands og styðja frumkvöðla á fyrstu stigum. Keppnin fór fram dagana 15.–22. apríl og er hluti af svokölluðu nýsköpunarferðalagi Norðurlands, þar sem frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar frá fyrstu skrefum að mögulegri fjárfestingu.

Úrslit keppninnar fóru fram í Messanum í Drift EA miðvikudaginn 22. apríl, þar sem sjö teymi kynntu verkefni sín fyrir dómnefnd og gestum. Það var verkefnið Þurrlýsi sem var valið Norðansprotinn 2026 og hlaut 1.000.000 króna verðlaunafé frá Landvættum, fjárfestingasjóði í rekstri Axum verðbréfa.

Sterk tenging við Krubb
Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því, að af þeim sjö teymum sem komust í úrslit höfðu þrjú nýverið tekið þátt í Krubbi, hugmyndahraðhlaupi Hraðsins. Þar fengu teymin stuðning frá mentorum og þjálfurum við að móta og þróa hugmyndir sínar áfram.

Þessi árangur undirstrikar mikilvægi Krubbs sem fyrsta skrefs í nýsköpunarferðalagi frumkvöðla og sýnir hvernig markviss þjálfun og stuðningur getur skilað sér í sterkari verkefnum og öflugu tengslaneti.
Verkefnin úr Krubbi sem komust í úrslit voru:

🟡 Hvalahljóðaleið, eða Echoes of the Deep, hugmynd Lara Schmitz, Julie Boesen og Antonia Assler. Verkefnið felur í sér gönguleið frá Húsavík að Sjóböðunum með þremur áningarstöðum þar sem skúlptúrar, innblásnir af hvalategundum í Skjálfanda, mynda hljóð með hjálp vindsins. 

🟡 , hugmynd Aniu Wójcik, sem snýr að hönnun minjagripa sem vekja athygli á hafinu og tengjast sérstöðu Húsavíkur. 

🟡 Plan It, hugmynd Elíasar Óla Tinnusonar Björnssonar. Um er að ræða smáforrit sem tengir framhaldsskólanema saman út frá áhugamálum og viðburðum

Mikilvægur vettvangur fyrir nýsköpun
Norðansprotinn er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, SSNE, SSNV, Drift EA og Hraðsins, með stuðningi frá Landvættum fjárfestingasjóði. Keppnin hefur á stuttum tíma skapað sér mikilvægan sess í nýsköpunarumhverfi Norðurlands. 

Stefán Pétur nýsköpunarstjóri Hraðsins sat í dómnefnd keppninnar á lokaviðburðinum ásamt fleiri aðilum. Að hans sögn eru aðstandendur Hraðsins afar stoltir af teymunum sem tóku þátt í Krubbi og náðu þessum frábæra árangri. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi vegferð þeirra.