Hönnunar- og nýsköpunarráðgjöf á þriðjudögum hjá Hraðinu
Hraðið miðstöð nýsköpunar býður nú upp á hönnunar- og nýsköpunarráðgjöf á þriðjudögum frá kl. 13:00–14:00.
Ráðgjöfin er veitt af Stefáni Pétri Sólveigarssyni, hönnuði með víðtæka þekkingu og reynslu á sviði hönnunar og nýsköpunar. Stefán hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum þar sem hann hefur þróað hugmyndir frá fyrstu stigum yfir í skýrar og markvissar lausnir, með áherslu á notendamiðaða nálgun, skapandi hugsun og raunhæfa útfærslu. Hann hefur reynslu af því að styðja einstaklinga og fyrirtæki við að móta hugmyndir, bæta þjónustu og þróa nýjar vörur eða lausnir.
Þetta er frábært tækifæri fyrir frumkvöðla, fyrirtæki og alla sem vilja fá leiðsögn í hönnun, hugmyndavinnu eða nýsköpunarferlum.
📩 Hægt er að panta ráðgjöf með því að senda tölvupóst á stefan@hac.is
