Þekkingarnetið hlýtur styrk úr Byggðarannsóknasjóði

Þekkingarnetið hlaut nýverið 4.500.000 kr. styrk úr Byggðarannsóknasjóði til að framkvæma verkefnið Getur saga Flateyjar á Skjálfanda og Skála á Langanesi verið gagnleg brothættum byggðum nútímans. – Fortíð, nútíð og framtíð brothættra byggða. Verkefnið er blönduð eigindleg og megindleg tilviksrannsókn þar sem þróun byggðar í Flatey á Skjálfanda og á Skálum á Langanesi er greind út frá sögulegum heimildum, lýðfræðilegum gögnum og frásögnum þeirra […]