Nýtt íslensku námskeið – Saman í málinu

Í haust mun Þekkingarnetið kynna nýtt og spennandi íslenskunámskeið, Saman í málinu, sem er sérstaklega ætlað foreldrum barna sem taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi en er opið öllum sem vilja bæta í orðaforða á þessu sviði. Námskeiðið er þróað í samstarfi við Völsung og Norðurþing og hlaut verkefnið styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til þess að vinna að verkefninu.

Námskeiðið byggir meðal annars á niðurstöðum viðtalsrannsóknarinnar meðal erlendra íbúa í Norðurþingi – Í átt að inngildingu. Reynsla Þekkingarnetsins af þróun og kennslu íslenskunámskeiða fyrir fullorðna hefur einnig orðið hvati þess að fara nýjar leiðir í íslenskukennslu.

Það sem gerir Saman í málinu sérstakt er áherslan á hagnýta íslensku sem nýtist foreldrum í samskiptum tengdum íþrótta- og tómstundastarfi barna þeirra. Foreldrar læra orðaforða og samskiptahæfni sem hjálpar þeim að taka virkari þátt í starfi barnanna, eiga samskipti við þjálfara og kennara og geta fylgst betur því sem fram fer.

Kennt verður í staðkennslu en aðgangur verður að stafrænum og öðrum námsgöngum sem gera þeim kleift að æfa sig heima. Stefnt er á að búa til spil sem foreldrar geta tekið með sér heim til að spila með börnunum sínum og í leiðinni æft sig í orðaforðanum. Með því að verður tungumálanámið hluti af daglegu lífi fjölskyldunnar.

Markmið námskeiðsins er að efla sjálfstraust foreldra í notkun íslensku, styrkja tengls þeirra við nærsamfélagið og auka þátttöku þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi barna sinna. Þekkingarnetið vonast til að námskeiðið verði mikilvægt framlag til aukinnar þátttöku og inngildingar fjölskyldna af fjölbreyttum uppruna.