Í Fab Lab Húsavík hefur verið mikið líf og fjör í vetur þar sem börn á grunnskólaaldri fengu að njóta sín í skapandi og skemmtilegu verkefni sem ber heitið Hljómverkstæðið.
Markmið verkefnisins var að kveikja sköpunargleði barna með því að sameina tónlist, hljóðfæragerð og tækni. Í sérsniðinni smiðju fengu þátttakendur tækifæri til að hanna og smíða eigin hljóðfæri, kynnast fjölbreyttum tækjum Fab Lab smiðjunnar og öðlast sjálfstraust í skapandi vinnu. Verkefnið endaði svo á tónlistarflutningi þar sem hljóðfærin fengu að njóta sín á örtónleikum á Stéttinni.
Hljómverkstæðið var samstarfsverkefni Fab Lab Húsavík og Tónlistarskólans á Húsavík og hlaut styrk úr Barnamenningarsjóði. Það var opið öllum áhugasömum börnum og var einnig hluti af skipulögðu skólastarfi. Í opnum tímum gátu krakkar komið með sínar eigin hugmyndir og látið þær verða að veruleika. Þar var afraksturinn ekki af verri endanum þar sem nemendur hönnuðu og smíðuðu m.a. bassa, trommu, hörpu og tamborínu.
Nemendur í 5. bekk Borgarhólsskóla tóku virkan þátt og komu reglulega í smiðjuna ásamt tónlistarkennara sínum. Verkefni þeirra var að hanna og smíða flautu. Það krafðist útsjónarsemi og komu óvæntir hlutir að góðum notum, eins og rafmagnsrör, hespur og latexhanskar sem nýttir voru til að þétta og fullkomna hljóðfærið.
Einnig tóku nemendur úr Þingeyjarskóla þátt í verkefninu og komu í smiðjuna ásamt kennurum sínum. Vegna fjarlægðar gátu þau ekki sótt smiðjuna jafn oft, en nutu þess í stað leiðsagnar listakennara skólans við að nýta sömu forrit og notuð eru í Fab Lab Húsavík til að hanna hljóðfærin sín í skólanum. Þá fengu þau heimsókn frá starfsmanni Fab Labsins sem aðstoðaði við að fínpússa hönnunina og tryggja að hún væri tilbúin til framleiðslu í tækjum smiðjunnar. Nemendur úr Þingeyjarskóla munu halda áfram með verkefnið á nýju skólaári og ljúka hljóðfæragerðinni þá.
Að lokinni smíðinni fengu nemendur leiðsögn í að ná hreinum tóni úr flautunum sínum og héldu í kjölfarið örtónleika á Stéttinni á Húsavík.
Við þökkum öllum þessum frábæru krökkum fyrir þátttökuna og vonumst til að sjá þau sem oftast í Fab Labinu.






