HönnunarÞing 2026: Orkan sem tengir fólk, hugmyndir og framtíð

Dagana 25.-26. september verður Húsavík aftur miðpunktur nýsköpunar og hönnunar þegar HönnunarÞing // DesignThing fer fram í fjórða sinn. Hátíðin hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem vettvangur þar sem skapandi og lausnamiðuð hugsun, nýsköpun og frumkvæði mætast og leiða af sér ný tengsl, nýjar hugmyndir og tækifæri. Í ár er þema hátíðarinnar eitt stærsta viðfangsefni samtímans, orka.

Orkuþemað spannar allt frá endurnýjanlegum orkugjöfum, tæknilausnum og auðlindum yfir í þá mannlegu orku sem knýr samfélög, fyrirtæki, sköpun og samstarf áfram. Orkan verður skoðuð út frá fjölbreyttum sjónarhornum hönnuða, frumkvöðla, listafólks, vísindafólks og atvinnulífs, með áherslu á það hvernig skapandi hugsun getur hjálpað okkur að takast á við áskoranir samtímans og móta framtíðina. Hvernig virkjum við skapandi kraft og hugvit um allt land?

,,Á dagskránni verða hiti, gleði, vöruhönnun, frumkvöðlar á sviði orkumála, samfélagsverkefni tengd sjálfbærni, nýsköpun í auðlindanýtingu, krókódílar, nemar og kennarar frá LHÍ, dans, fjármögnun, sjóböð, óvæntir viðburðir og margt fleira. Dagskrá og nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur, en þetta verður geggjað. Ef einhver er með tillögu að einhverju spennandi þá má endilega senda mér línu á stefan@hac.is. Það sem skiptir máli núna er að taka tímann frá, panta gistingu og njóta sumarsins og hlakka til þess að taka þátt í HönnunarÞingi 2026!” segir Stefán Pétur hjá Hraðinu, miðstöð nýsköpunar á Húsavík.

Stefán Pétur er menntaður vöruhönnuður og nýsköpunarstjóri Hraðsins, sem er nýsköpunarsvið Þekkingarnetsins. Hann er jafnframt forsprakki HönnunarÞings. Hátíðin er skipulögð af Hraðinu og SSNE í samstarfi við fjölmarga aðila úr atvinnulífi, menningu, nýsköpun og háskólasamfélagi. SSNE gegnir lykilhlutverki í eflingu nýsköpunarsenunnar í landshlutanum og er einn helsti samstarfsaðili viðburðarins.

,,Fyrir Þekkingarnetið er HönnunarÞing sérlega áhugaverður viðburður. Hér sameinast öll svið stofnunarinnar í kraftmiklum viðburði. Nýsköpun, símenntun,  háskólamenntun, rannsóknir og skapandi greinar eiga það sameiginlegt að byggja á forvitni og vilja til að læra, þróa og miðla. Viðburðir á borð við HönnunarÞing skapa mikilvægan vettvang fyrir samtal milli atvinnulífs, menntastofnana, frumkvöðla og samfélagsins alls. Þetta er vettvangur til að veita innblástur, hreyfa við hugmyndum og búa til strauma milli fólks. Ég hvet fólk til að taka dagana strax frá og leyfa sér að hlakka til að mæta og njóta.” segir Hildur forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga.

Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara verða kynntar á næstu vikum, en þó er hægt að kíkja á gluggana á hradid.is. Þangað til er um að gera að taka dagana frá og hlakka til tveggja orkumikilla daga á Húsavík í haust.

Hér má finna facebook viðburð HönnunarÞings // DesignThing 2026