Ársfundur Samtaka þekkingarsetra

Ársfundur Samtaka þekkingarsetra var haldinn í Vestmannaeyjum þann 26. ágúst síðastliðinn. Fulltrúar allra þekkingarsetra innan samtakanna mættu á fundinn og eyjarnar skörtuðu sínu fegursta í blíðunni. Á dagskrá fundar var m.a. fjölbreytt starfsemi ársins auk þess sem farið var sérstaklega yfir sameiginleg verkefni og tækifæri til áframhaldandi samstarfs. Á dagskrá fundarins var einnig fræðsluerindi frá Gretti Jóhannessyni sem bar yfirskriftina „Er framtíðin mætt?“ Þar fjallaði hann um örar framfarir á sviði gervigreindar og hvaða áhrif þær hafa í dag á samfélag og vinnumarkað.

Auk fundarstarfa í Vestmannaeyjum gafst þátttakendum tækifæri til að kynnast svæðinu betur og uppbyggingunni sem þar fer fram í atvinnulífinu. Hörður kynnti starfsemina í húsnæði Þekkingarseturs Vestmannaeyja og farið var í ferð með leiðsögn um eyjarnar. Það fræddumst við meðal annars um nýsköpun í krabbaveiðum og ferðaþjónustu.

Fundurinn var bæði ánægjulegur og gagnlegur og við þökkum Þekkingarsetri Vestmannaeyja innilega fyrir hlýjar móttökur og frábæra dagskrá.

Samtök þekkingarsetra eru samtök stofnana sem sinna rannsóknum, nýsköpun og háskólaþjónustu í byggðum landsins. Setrin starfa í almannaþjónustu með samningsbundin og skilgreind hlutverk í samstarfi við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið. Markmið samtakanna er að efla samstarf þekkingarsetra á landsbyggðinni og gæta sameiginlegra hagsmuna þeirra.