Að prjóna hefur afskaplega marga kosti. Léttur taktur prjónanna róar hugann, það ýtir undir seiglu, nákvæmni og einbeitingu, viðheldur liðum í höndum og þjálfar fínhreyfingar. Svo ekki sé minnst á dópamínframleiðsluna þegar verk er klárað og ánægjuna að eiga, eða gefa, nýja flík.
Þekkingarnet Þingeyinga heldur um þessar mundir prjónanámskeið þar sem þátttakendur fá uppskrift að einfaldri peysu og læra að prjóna hana undir leiðsögn Hugrúnar Rúnarsdóttur. Ein af helstu ástríðum Hugrúnar er prjónaskapur. Hún starfar þýðandi hjá DROPS design sem er vefsíða sem býður upp á fjölmargar ókeypis prjónauppskskriftir á 17 tungumálum, auk kennslumyndbanda, þvottaleiðbeininga og almennra upplýsinga um prjón og hekl. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa prjónað áður en þurfa upprifjun. Þátttakendur eru ofboðslega ánægðir með námskeiðið og kennsluna og lýsa Hugrúnu sem hjálpsömum og hvetjandi kennara. Stundirnar eru notalegar og skemmtilegar.