Sjálfbærnimenntun í brennidepli í Litháen

Starfsmaður Þekkingarnets Þingeyinga tók nýverið þátt í vinnufundi í Kaišiadorys í Litháen sem hluta af Nordplus-verkefninu Social Sustainability & Wellbeing in Communities. Að verkefni standa auk Þekkingarnetsins, fullorðinsfræðslustofnunin Kianta-Opisto í Suomussalmi í norðausturhluta Finnlands og Kaišiadorys Education and Sport Centre í Litháen.

Markmið verkefnisins er að styrkja stofnanirnar á sviði sjálfbærnimenntunar. Á verkefnistímanum verður unnið að þróun sex vikna námsskeiðspakka sem mun nýtast fjölbreyttum hópum nemenda. Jafnframt verður þróuð sameiginleg stafræn handbók með dæmum af aðferðum og verkfærum sem styðja við innleiðingu sjálfbærnimenntunar.

Á fundinum í Litháen fóru þátttakendur yfir upplýsingar sem safnast hafa um stöðu samstarfsstofnananna á sviði sjálfbærni og undirbjuggu sameiginlega könnun sem lögð verður fyrir starfsfólk og stjórnendur í samstarfslöndunum.

Ferðin gaf jafnframt tækifæri til að kynnast fjölbreyttum dæmum um sjálfbærnimenntun og samfélagsþátttöku í litháísku samfélagi. Hópurinn heimsótti meðal annars félagsmiðstöðina Mazgas þar sem áhersla er lögð á útinám, umhverfisfræðslu, öruggt umhverfi og virka þátttöku. Einnig voru tveir grunn- og framhaldsskólar heimsóttir sem m.a. samþætta listir, m.a. leiklist og dans við hefðbundið nám og nýta skapandi greinar til að efla sjálfbærnihugsun og samfélagslega ábyrgð heimsækja Rumšiškių Antano Baranausko gimnazija, Žiežmarių gimnazija.

Þá kynntust þátttakendur starfi leirlistafólksins Audronė Skarbaliūtė og Leonas Vytautas Glinskis sem hafa um árabil staðið fyrir námskeiðum, heimsóttu menningarmiðstöð sem stendur fyrir sýningum, fræðslu og samfélagsverkefnum auk þess að skoða sögulegan kastala þar sem lögð er áhersla á varðveislu menningararfs og fræðslu. Heimsókn í þjóðminjasafn undir berum himni veitti innsýn í hefðir og lífshætti ólíkra héraða Litháens, þar sem meðal annars var sýnt hvernig miðla má menningararfi, matargerð og siðum til nýrra kynslóða Lithuanian Ethnography Museum, Rumšiškių kultūros centras.

Heimsóknin var afar lærdómsrík og gaf þátttakendum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum verkefnum á sviði sjálfbærnimenntunar, lista, menningararfs og samfélagsþróunar. 

Þekkingarnet Þingeyinga vill færa samstarfsaðilum og gestgjöfum í Litháen innilegar þakkir fyrir hlýjar móttökur og áhugaverða dagskrá sem verður góður grunnur fyrir áframhaldandi samtal og samstarf á sviði sjálfbærnimenntunar. Sérstakar þakkir fá starfsfólk Kaišiadorys Education and Sport Centre fyrir frábært skipulag og höfðinglegar móttökur sem gerðu heimsóknina bæði ánægjulega og árangursríka.