Ársfundur FA í streymi – Samstarf um raunfærnimat

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fór fram í dag undir yfirskriftinni Samstarf um raunfærnimat. Fundurinn var haldinn í samstarfi við NLL – Norrænt samstarf um símenntun og fjallaði um gildi raunfærnimats fyrir einstaklinga, atvinnulíf og samfélag. 

Meðal helstu áskorana sem ræddar voru á fundinum er mikilvægi þess að raunfærnimat fái aukið vægi innan menntakerfisins, að sýnileiki þess verði meiri og að atvinnulífið verði betur upplýst um þau tækifæri sem felast í því. Jafnframt kom fram að fyrirhugað sé að færa framkvæmd raunfærnimats í miðlægara skipulag á landsvísu. Enn á þó eftir að koma í ljós hvernig þeirri útfærslu verður háttað og hvaða áhrif hún mun hafa á starfsemi símenntunarmiðstöðva og aðgengi einstaklinga að raunfærnimati. 

Símenntunarmiðstöðvar gegna lykilhlutverki í framkvæmd raunfærnimats um land allt. Þær annast kynningu og upplýsingagjöf til atvinnulífsins og mögulegra þátttakenda, sjá um að fá hæfa matsaðila til starfa og tryggja að framkvæmdin uppfylli þær gæðakröfur sem gerðar eru til starfseminnar. 

Við áframhaldandi þróun raunfærnimats er því mikilvægt að nýta þá þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan símenntunarmiðstöðvanna og tryggja að breytingar á skipulagi verði bæði miðstöðvunum og ekki síður þátttakendum til hagsbóta. Markmiðið hlýtur að vera að efla raunfærnimat, auka aðgengi að því og tryggja að fleiri einstaklingar geti fengið færni sína og reynslu metna til náms eða starfa. 

Tveir einstaklingar voru heiðraðir sem fyrirmyndir í námi fullorðinna og sögðu frá reynslu sinni af raunfærnimatsferlinu. Báðir einstaklingar upplifðu að raunfærnimatið hefði eflt sjálfsöryggi þeirra og blásið í þá kraft til að fara í nám. Þakklæti í garð framhaldsfræðlsuaðila var þeim einnig ofarlega í huga. Sögur þessara einstaklinga minna okkur á hvað raunfærnimat er dýrmætt verkfæri, bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. 

Þekkingarnet Þingeyinga tók þátt í fundinum og fylgist áfram með þróun á þessu mikilvæga sviði sem styður við náms- og starfsþróun fólks um land allt. 

Ef þú vilt vita meira um raunfærnimat og kanna hvort það geti verið möguleiki fyrir þig hvetjum við þig til að hafa samband við okkur á thorbjorg@hac.is eða í síma 464 5100.