Nýverið lauk frumkvöðlahraðlinum Startup Landið, þar sem þátttakendur unnu að þróun viðskiptahugmynda sinna með stuðningi sérfræðinga og leiðbeinenda. Alls tóku 12 verkefni frá sjö landshlutum þátt í hraðlinum, sem lauk með kynningarviðburði á Selfossi 6. nóvember.
Stefán Pétur Sólveigarson, verkefnastjóri Hraðsins og FabLab Húsavík, tók þátt í verkefninu sem mentor og veitti frumkvöðlum ráðgjöf á sviði hönnunar og vöruþróunar. Þátttakan er liður í því að efla tengsl Hraðsins við nýsköpunarumhverfið og styðja við framgang nýrra hugmynda.
Ráðgjöf og stuðningur á einum stað
Hraðið býður frumkvöðlum, fyrirtækjum og einstaklingum upp á hönnunarráðgjöf og aðstoð við þróun hugmynda og afurða. Hægt er að bóka tíma hjá Stefáni með því að senda tölvupóst á stefan@hradid.is.
Í Fab Lab Húsavík, sem er hluti af starfsemi Hraðsins, er að finna fjölbreyttan og öflugan tækjakost sem opnar ótal möguleika til hönnunar, frumgerðasmíði og vöruþróunar. Þar er jafnframt veitt tækniráðgjöf og aðstoð við að nýta stafræna framleiðslutækni til að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd.
Á Stéttinni, þar sem Hraðið er til húsa, hafa atvinnuráðgjafar SSNE einnig aðsetur. Þar gefst því gott tækifæri til að sækja sér ráðgjöf á einum stað, allt frá fyrstu hugmynd og útfærslu hennar yfir í viðskiptaþróun og möguleika á styrkfjármögnun.
Hvort sem hugmyndin er á byrjunarstigi eða komin lengra í þróun er því stutt í ráðgjöf og stuðning við að taka næstu skref. Einstaklingar og teymi eru hvött til þess að nýta sér þessa frábæru og aðgengilegu ráðgjöf.

Stefán Pétur Sólveigarson, verkefnastjóri Hraðsins og FabLab Húsavík