Í dag, 16. nóvember, fögnum við Degi íslenskrar tungu. Dagurinn er kærkomið tækifæri til að minna á mikilvægi íslenskunnar, ekki síst fyrir þau sem eru að læra tungumálið og vilja verða virkari þátttakendur í íslensku samfélagi. 

Íslenskukennsla fyrir íbúa af erlendum uppruna er mikilvægur þáttur í því að stuðla að virkri samfélagsþátttöku, auknum tækifærum á vinnumarkaði og sterkari tengslum fólks við nærsamfélagið. Góð íslenskukunnátta auðveldar dagleg samskipti, eykur sjálfstæði og skapar fleiri tækifæri til þátttöku í atvinnu- og félagslífi. Þetta sýndi sig vel í niðurstöðum rannsóknar Þekkingarnetsins: Í átt að inngildingu þar sem að helmingur þeirra sem sögðust eingöngu stundum eða sjaldan taka þátt í félagsstarfi nefndu tungumálahindranir sem þröskuld til frekari þátttöku. 

Hilmar Valur Gunnarsson, verkefnastjóri á símenntunarsviði Þekkingarnetsins, hefur umsjón með íslenskukennslu fyrir erlenda íbúa á starfssvæðinu. Hann segir að Þekkingarnetið hafi um árabil lagt ríka áherslu á íslenskukennslu fyrir erlenda íbúa á starfssvæði sínu. ,,Við búum yfir öflugum hópi reyndra og hæfra kennara og leggjum áherslu á fjölbreytt og aðgengilegt námsframboð sem tekur mið af þörfum nemenda. Þekkingarnetið hefur sveigjanleika til að bjóða upp á íslenskunámskeið hvar og hvenær sem þörf er á, bæði í staðnámi og fjarnámi, fyrir einstaklinga jafnt sem fyrirtæki og stofnanir. Við hvetjum ykkur til að heyra í okkur ef þið hafið hugmyndir eða fyrirspurnir, hac@hac.is eða í síma 4645100.” 

Ólíkar aðstæður kalla á sveigjanleika 

Mikilvægt er að stjórnvöld horfi til ólíkra aðstæðna símenntunarmiðstöðva þegar kemur að fjármögnun íslenskukennslu. Starfssvæði miðstöðvanna eru afar mismunandi hvað varðar íbúafjölda, dreifingu byggðar og vegalengdir milli þéttbýlisstaða. Á fámennari og dreifbýlli svæðum getur reynst erfitt að ná tilskildum lágmarksfjölda þátttakenda á námskeið, þrátt fyrir að þörfin fyrir kennslu sé sannarlega til staðar. Þetta á ekki síst við um framhaldsnámskeið í íslensku, þar sem þátttakendur hafa þegar lokið grunnnámi og vilja halda áfram að byggja upp tungumálafærni sína. Eftir því sem lengra er komið í náminu fækkar gjarnan þeim sem eru á sama færnistigi og því getur reynst erfitt að mynda nægilega fjölmenna námshópa. Afleiðingin getur orðið sú að einstaklingar sem hafa bæði áhuga og vilja til að halda áfram íslenskunámi fá ekki tækifæri til þess vegna viðmiða um lágmarksfjölda þátttakenda. 

Til að tryggja jafnt aðgengi að íslenskunámi, óháð búsetu, er því nauðsynlegt að fjármögnun og skilyrði fyrir námskeiðahaldi taki mið af þessum ólíku aðstæðum. Sveigjanleiki í úthlutun fjármagns og raunhæfar kröfur um þátttakendafjölda geta skipt sköpum fyrir möguleika minni samfélaga til að bjóða upp á íslenskukennslu. 

Á Degi íslenskrar tungu viljum við því minna á að íslenskan á að vera aðgengileg öllum sem vilja læra hana. Með öflugri íslenskukennslu og sanngjörnum stuðningi við fræðsluaðila um allt land styrkjum við ekki aðeins stöðu tungumálsins heldur einnig samfélagið í heild.