Aðstaða

Þekkingarnetið hefur það hlutverk samkvæmt skipulagsskrá og samningi við mennta-, og barnamálaráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið að þjónusta vísinda- og fræðastarf í Þingeyjarsýslum. Þannig er lögð áhersla á að hýsa rannsakendur og aðstoða þá sem sinna rannsóknum í Þingeyjarsýslum með margvíslegum hætti.  Slík þjónusta er veitt með aðgangi að húsnæði, tækjum og netkerfi Þekkingarnetsins auk þess sem ráðgjöf er veitt með formlegum og óformlegum hætti við rannsóknastarf.

Þessi rannsóknaþjónusta er veitt ýmsum aðilum, eftirtöldum helst:

  • Starfsfólki rannsóknastofnana,
  • rannsakendum á vegum háskóla á Íslandi,
  • námsfólki í rannsóknaverkefnum,
  • sjálfstæðum rannsakendum (íslenskum og erlendum).

Þekkingarnetið hefur jafnframt gert sérstakan samning við Vísindagarða HÍ og Háskólann á Akureyri um samnýtingu aðstöðu, húsnæðis og þekkingar á sviði nýsköpunar í þágu rannsakenda og frumkvöðla.