Hittumst heima – í Norðurþingi

Skemmtilegur menningarviðburður á Stéttinni

21. september 2024 fór fram líflegur menningarviðburður, Hittumst heima á Húsavík, á Stéttinni. Þar kom fólk saman úr ólíkum áttum þar sem sögur, handverk og tónlist voru í forgrunni.

Fjölmargir gestir lögðu leið sína á Stéttina til að njóta fjölbreyttra atriða frá einstaklingum af ólíkum uppruna og með fjölbreyttan bakgrunn. Öll atriðin áttu það sameiginlegt að endurspegla fjölbreytta menningu og reynsluheim þátttakenda. Kaffi og með því var í boði og margir gáfu sér tíma til að spjalla eftir að formlegri dagskrá lauk.

Viðburðurinn gaf tækifæri fyrir gesti til að mynda ný tengsl og endurnýja gömul kynni. Fjölbreyttar sögur og menning sameinar fólk og byggir brýr milli ólíkra hópa.

Við þökkum innilega öllum þeim sem tóku þátt í dagskránni og gestum fyrir komuna.

Viðburðurinn var styrktur af Uppbyggingarsjóði SSNE.