Þekkingarnetið tekur þátt í Byggðaráðstefnunni

Byggðaráðstefnan 2025 var haldin í Skjólbrekku í Mývatnssveit þann 4. nóvember undir yfirskriftinni „Félagslegur fjölbreytileiki samfélaga – jafnvægi, áskoranir eða vannýtt sóknarfæri?“ Ráðstefnan er árlegur vettvangur sem Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga standa sameiginlega að, þar sem rætt er um þróun byggða, samfélagsleg málefni og framtíðarmótun landsbyggðarinnar.

Á ráðstefnunni var fjallað um hvernig fjölbreytt samfélög geta orðið drifkraftur jákvæðrar byggðaþróunar og hvernig sveitarfélög, stofnanir og íbúar geta nýtt félagslegan fjölbreytileika sem styrk fremur en áskorun. Á dagskrá voru fjölmörg erindi og pallborðsumræður þar sem rætt var um aðlögun, inngildingu og samfélagslega þátttöku nýrra íbúa í dreifðum byggðum, auk frásagna af verkefnum sem hafa skilað árangri víða um land.

Þekkingarnet Þingeyinga tók virkan þátt í ráðstefnunni og flutti Ingibjörg Benediktsdóttir erindi undir yfirskriftinni „Hvað hjálpar innflytjanda? – Hagnýt rannsókn á byggð á reynslu innflytjenda í Norðurþingi“. Erindið byggði á eigindlegri rannsókn sem unnin er með styrk frá Þróunarsjóði innflytjendamála og miðar að því að varpa ljósi á reynslu og stöðu innflytjenda í Norðurþingi. Rannsóknin byggist á 30 viðtölum við innflytjendur af ólíkum uppruna þar sem rætt er um upplifun þeirra af daglegu lífi, aðgengi að þjónustu, þátttöku í atvinnu og menningu, auk þess sem skoðaðar eru helstu hindranir og stuðningskerfi sem hafa reynst gagnleg.

Þátttaka á ráðstefnunni var góð og húsfyllir í Skjólbrekku.