Vorfundur símenntunarmiðstöðva haldinn á Húsavík

Vorverðið var helst til ljóst að lit, en umræðuefnin heit og hópurinn samstilltur

Dagana 5.–6. maí fór fram vorfundur framkvæmdastjóra og forstöðumanna Símenntar; fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á Íslandi. Fundurinn var haldinn á Stéttinni og sátu hann fulltrúar allra miðstöðva, víðs vegar af landinu.

Á fundinum var sjónum beint að kjarnahlutverki símenntunarmiðstöðva sem mikilvægum fræðslu- og samfélagsinnviðum. Umræður snéru meðal annars að mikilvægi aðgengis íbúa að náms- og starfsráðgjöf og að boðið sé upp á raunfærnimat í heimabyggð í nánu samstarfi við atvinnulíf. Sérstök áhersla var lögð á hlutverk símenntunarmiðstöðva í samfélagslegri inngildingu og íslenskukennslu, jöfnu aðgengi að námi og byggðaþróun.

Heimsókninni lauk á opnum fundi með forsætisráðherra og ráðherra menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytis. Meðal umræðuefna var þáttur símenntunarmiðstöðva í íslenskukennslu, aðlögun innflytjenda og virkni á vinnumarkaði í tengslum við atvinnustefnu stjórnvalda.