Við auglýsum eftir öflugum og áhugasömum náms- og starfsráðgjafa. Um er að ræða fjölbreytt starf í fagteymi þar sem unnið er náið með einstaklingum, atvinnulífi og fræðsluaðilum á starfssvæði Þekkingarnetsins. Viðkomandi mun taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu fólks og atvinnulífs á kraftmiklu starfssvæði Þekkingarnetsins.
Starfið og vinnustaðurinn:
- Fjölbreytt og dýnamískt starf í öflugu fagteymi
- Fjölskylduvænt og líflegt starfsumhverfi
- Sveigjanlegt starfshlutfall 70–80%, með möguleika á auknu starfshlutfalli
- Tækifæri til faglegs vaxtar og þróunar
- Þátttaka í verkefnum með það að markmiði að efla samfélagið og einstaklinga þess
- Þekkingarnetið er miðstöð símenntunar, rannsókna, háskólanáms og nýsköpunar á NA-horni landsins innan Þingeyjarsýslna.
- Starfsstöðvar eru á Stéttinni Norðurþingi, Kistunni Langanesbyggð og Gíg Þingeyjarsveit
Helstu verkefni fagteymis:
- Náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa
- Skráning gagna og utanumhald
- Aðstoð til einstaklinga í tengslum við eflingu styrkleika, greiningu áhugasviða og markmiða
- Upplýsingagjöf
- Umsjón og utanumhald raunfærnimats
- Umsjón og skipulagning námsleiða og námskeiða
- Ráðgjöf varðandi starfsþróun
- Þarfagreiningar og þróunarverkefni í samstarfi við atvinnulífið
- Þátttaka í samráði og samstarfi um ráðgjöf í fullorðinsfræðslu á landsvísu
- Önnur tilfallandi verkefni eftir því sem aðstæður kalla á
Hæfniskröfur
- Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi eða önnur menntun sem styrkir fagteymið, t.d. á sviði félagsráðgjafar
- Þekking á íslensku menntakerfi og vinnumarkaði
- Reynsla af ráðgjöf, kennslu, verkefnastjórn eða símenntun er kostur
- Góð samskiptahæfni og færni í upplýsingagjöf
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð hæfni til teymisvinnu
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli
- Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér nýjungar
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí
Upplýsingar um starfið veitir Hildur Halldórsdóttir, forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga. Umsóknum er skilað í gegnum alfred.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um umsagnaraðila, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.