Skemmtileg skólaheimsókn

Ratleikur í Kistunni

Við í Kistunni fengum skemmtilega heimsókn í dag, en yngsta stig grunnskólans kíkti við í morgun. Mætt voru 17 af 20 krökkum til að skoða Kistuna. Þau skelltu sér beint í ratleik um húsnæðið þar sem þau leituðu að vísbendingum og svöruðu spurningum um allt milli himins og jarðar. Þau fengu til dæmis spurninguna “Hvað á Hilma skólastjóri marga kjóla?” og rétt svar var 91. Þeim tókst öllum að troða sér inn í peningarskápinn en vildu ekki að honum væri lokað. Ratleikurinn endaði inni í eldhúsi þar sem var boðið upp á veitingar. Við þökkum þessum hressu krökkum fyrir komuna.