Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja auka þekkingu sína á notkun CNC-fræsara og stafrænnar framleiðslu.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
✅ Öryggisatriði og notkun CNC-fræsara
✅ Hönnun og teikningu í VCarve
✅ Hvernig teikningar eru yfirfærðar í fræsarann
✅ Notkun FabLab-tækja við húsasmíði og önnur tréverkefni
✅ Hvernig hægt er að sérsníða verkefni að eigin þörfum
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast réttindi til að nota stóra CNC-fræsarann í FabLab Húsavík og geta þá hafist handa við að smíða eigin verkefni með aðstoð starfsfólks eftir þörfum.
Verkefnin geta til dæmis verið:
• Búkofi eða leikhús fyrir börn
• Hundakofi
• Kattagerði eða útisvæði fyrir kött
• Garðhús eða útieldhús
• Önnur sérhönnuð smíðaverkefni
Athugið: Efni sem notað er við sjálfa smíðina er ekki innifalið í námskeiðsgjaldi og kaupa þátttakendur það sjálfir. Annar efniskostnaður sem fellur til við kennslu á námskeiðinu er innifalinn.
Leiðbeinandi: Jón Þór Sigurðsson, forstöðumaður FabLab Akureyri
Aðstoðarkennari: Stefán Pétur
FabLab Húsavík
12 klukkustunda námskeið í fjögur skipti
Kennsla fer fram á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00–20:00
Hefst 17. ágúst og lýkur 26. ágúst
Verð: 48.900 kr.
Komdu og lærðu að nýta stafræna framleiðslu til að hanna og smíða þitt eigið húsverkefni – hvort sem það er fyrir börnin, gæludýrin eða garðinn!
Við hvetjum þátttakendur til að kanna möguleika á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.