Blágarður sprettur upp á Stéttinni

Gyde er einn af Hröðurunum á Stéttinni, frumkvöðull sem fann sinn stað í samfélaginu á Húsavík og starfar hjá frístund og sjálftætt með vinnuastöðu hjá Hraðinu miðstöð nýsköpunar. En Hraðið er líflegur heimavöllur frumkvöðla þar sem þeir hafa aðgang að hvetjandi starfsumhverfi, vinnuaðstöðu, næðis- og fundarrýmum, svo ekki sé minnst á frumgerðarvekstæðið í Fab lab Húsavík. Gyde kom upphaflega til Húsavíkur sem mastersnemi til að starfa við rannsóknir hjá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands sem jafnframt er staðsett á Stéttinni. Líkt og svo mörg hver sem koma til Húsavíkur að nema, sá hún spennandi tækifæri til nýsköpunar og búsetu. Hún sótti atvinnuþróunar- og styrkjaráðgjöf hjá SSNE, hönnunarráðgjöf hjá Hraðinu og eins og sjá má er mikill stígandi í verkefninu hennar.

Frumkvöðlaverkefnið ,,Blue Community Garden” eða Blágarðar byggir á hugmyndinni um samfélagsgarð í sjónum með það að markmiði að tengja saman nýsköpun, samfélög, fræðslu, atvinnulífið, vísindi og listir. Þar mun fara fram ræktun þara og kræklinga, ásamt fræðslu og upplifun fyrir börn, íbúa, rannsakendur og ferðafólk. Eitt af undirmarkmiðunum er að efla tengsl fólks við hafið og auka skilning á mikilvægi fjölbreytta vistkerfi hafsins sem umlykur okkur.

Gyde hefur bakgrunn í hafvísindum, ferðamálum á Norðurslóðum, vísindamiðlun, haflæsi og vinnu með börnum. Útfrá reynslu hennar og menntun leggur hún áherslu á að miðla þekkingu með skapandi og verklegum hætti.

Þá dregur hún sérstaklega fram að niðurstöður rannsókna um samfélagsgarða hafi reynst jákvæðar hvað varðar bæði eflingu samfélaga, sem og tengingu við sjálfbærni og uppruna fæðu.

Frá því að verkefnið hófst hefur það tekið á sig mynd í samstarfi við bæði innlenda og erlenda samstarfsaðila. Þetta mikla tengslanet sem hefur myndast samanstendur t.d. af Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Húsavík, Hraðinu, Hvalasafninu, STEM Húsavík, Borgarhólsskóla, Norðurþingi, Naustinu veitingahúsi og University of Gothenburg Centre for Sea and Society in Sweden. Tengsl hafa líka myndast í formi samstarfs við aðila í Danmörku, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð og Spáni. Gyde hefur einnig fengið styrki frá Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra, Fræ Tækniþróunarsjóði, Nora og Atvinnumálum kvenna til þess að þróa verkefnið áfram.

Gyde vonar að fyrsta útgáfa Blágarða verði sett upp á Húsavík og að hún geti þróað verkefnið áfram héðan. Hún stefnir að því í framhaldinu að byggja upp net sambærilegra blágarða víða um Ísland og í öðrum strandsamfélögum.

Við hlökkum mikið til að fylgjast með þróun þessa skapandi og spennandi verkefnis á næstu misserum.