Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja auka þekkingu sína á notkun CNC-fræsara og stafrænnar framleiðslu.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
✅ Öryggisatriði og notkun CNC-fræsara
✅ Hönnun og teikningu í VCarve
✅ Hvernig teikningar eru yfirfærðar í fræsarann
✅ Undirbúning og skipulag verkefna fyrir gróðurhúsasmíði
✅ Notkun FabLab-tækja við smíðaverkefni
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast réttindi til að nota stóra CNC-fræsarann í FabLab Húsavík og geta þá hafist handa við að smíða eigið gróðurhús með aðstoð starfsfólks eftir þörfum.
Athugið: Efni sem notað er við sjálfa gróðurhúsasmíðina er ekki innifalið í námskeiðsgjaldi og kaupa þátttakendur það sjálfir. Annar efniskostnaður sem fellur til við kennslu á námskeiðinu er innifalinn.
Leiðbeinandi: Jón Þór Sigurðsson, forstöðumaður FabLab Akureyri
Aðstoðarkennarar: Stefán Pétur og Huginn
FabLab Húsavík
12 klukkustunda námskeið í fjögur skipti
Kennsla fer fram á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00–20:00
Hefst 15. júní og lýkur 25. júní
Verð: 48.900 kr.
Komdu og lærðu að nýta stafræna framleiðslu til að gera drauminn um eigið gróðurhús að veruleika!
Við hvetjum þátttakendur á að kanna möguleika á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.