Í Fab Lab Húsavík er þessa dagana verið að ljúka uppsetningu á glæsilegri kennslu, hönnunar og rafíþróttaaðstöðu sem mun nýtast bæði til kennslu, þjálfunar og skapandi verkefna. Aðstaðan verður sameiginlegur vettvangur fyrir Grunnskóla Húsavíkur, Framhaldsskólann á Húsavík, íþróttafélagið Völsung, Fab Lab smiðjuna og almenning.
Með þessu verkefni er verið að skapa eitt öflugasta tölvuverið á svæðinu, þar sem áhersla er lögð á gæðabúnað, samnýtingu og aðgengi. Aðstaðan verður meðal annars nýtt til rafíþróttaþjálfunar, námskeiðahalds, kennslu í skólunum og fjölbreyttra verkefna sem krefjast öflugra tölva.
Verkefnið hefði ekki orðið að veruleika án öflugs stuðnings frá samfélaginu. Við viljum færa okkar bestu þakkir til þeirra fyrirtækja sem lögðu sitt af mörkum:
- Framsýn og Þingiðn styrktu verkefnið með glæsilegum skjám.
- Heimamenn gáfu frábærar leikjamýs.
- Hvalasafnið á Húsavík lagði til músarmottur.
- GeoSea styrkti verkefnið með pening.
- Víkurraf styrkti verkefnið með heyrnartólum og lyklaborðum.
- Sparisjóður Suður Þingeyinga styrkti verkefnið með pening sem hægt var að kaupa tvær tölvur fyrir.
Fab Lab Húsavík, Framhaldsskólinn á Húsavík og Grunnskóli Húsavíkur lögðu jafnframt fram öflugar tölvur og eru nú sjö ný vinnslutæki komin í notkun. Stefnt er að því að fjölga þeim í tíu á næstu vikum og mánuðum. Fyrirtæki eða einstaklingar sem vilja leggja verkefninu lið með styrk eða búnaði eru hjartanlega velkomnir að hafa samband.
Samstarfssamningur milli skólanna og Fab Lab Húsavík gerir það að verkum að eitt sameiginlegt og afar öflugt tölvuver verður staðsett í smiðjunni. Með þessari samnýtingu nýtist búnaðurinn mun betur, fleiri fá aðgang að honum og auðveldara verður að halda honum í fremsta gæðaflokki til framtíðar.
Þetta er stórt skref fyrir tæknimenntun, rafíþróttir og stafræna sköpun á Húsavík og við hlökkum til að sjá aðstöðuna fyllast af nemendum, þátttakendum og áhugafólki á öllum aldri.
Við þökkum öllum þeim sem komu að verkefninu innilega fyrir stuðninginn. Á næstu dögum munum við kynna styrktaraðila okkar nánar á samfélagsmiðlum og sýna betur frá þessari spennandi nýju aðstöðu.