Þekkingarnetið býður fyrirtækjum upp á sérsniðin íslenskunámskeið sem miða að þörfum hvers vinnustaðar. Kennslan getur farið fram á vinnustað fyrirtækisins eða í aðstöðu Þekkingarnetsins, allt eftir því sem hentar best.
Hvort sem um er að ræða stakt námskeið eða reglulega kennslu til lengri tíma, vinnum við með fyrirtækjum að námskeiðsáætlun sem tekur mið af markmiðum þeirra og þörfum starfsfólks. Yfirmarkmiðið er að efla íslenskukunnáttu starfsfólks og styðja við góð samskipti og aukna þátttöku á vinnustaðnum.
Nýlega hafa þrettán starfsmenn Jarðbaðanna við Mývatn lokið 40 klukkustunda A1 námskeiði í íslensku fyrir byrjendur. Kennarinn þeirra var Ásta Lóa Madslund og mikil ánægju með kennsluna hennar eins og sjá má í umsögnum nemenda.
Að sögn Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, mannauðs- og markaðsstjóri Jarðbaðanna, sýndi starfsfólkið mikinn áhuga á að sækja íslenskunámskeið og komust færri að en vildu. Þegar ljóst var hversu mikill áhuginn var, könnuðu Jarðböðin möguleikann á einkanámskeiði fyrir sitt fólk. Við tökum að sjálfsögðu fagnandi á móti slíkum fyrirspurnum og gerðum okkar besta við að bregðast við óskum fyrirtækisins um tíma, tíðni og orðaforða í tengslum við starfsemina. Og úr varð námskeið sem hófst nokkrum dögum síðar!
,,Starfsfólkið er afar sátt eftir námskeiðið og hefur lýst miklum áhuga á framhaldi, sem stefnt er að í haust. Við erum afar ánægð með framkvæmdina og skipulag námskeiðsins. Við erum sérstaklega ánægð með að þar sem þetta var einkanámskeið, þá gátum við lagt áherslu á að starfsfólkið okkar lærði undirstöðuatriði í íslensku sem gagnast þeim vel í starfi. Þá luku þau námskeiðinu með því að ganga um nýju Jarðböðin með íslenskukennaranum og útskýrðu svæði innan nýbyggingarinnar á íslensku. Kennarinn, hún Ásta fékk mjög góða umsögn frá starfsfólkinu og augljóst að hún er á réttri hillu. Hún náði vel til starfsfólksins og jók áhuga þeirra á íslensku með skemmtilegum og mismunandi verkefnum. Það er enginn vafi hjá mér að þau hafa eflt sjálfstraust sitt í notkun íslenskunnar með námskeiðinu” segir Ragnhildur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jarðböðin hafa nýtt sér þjónustu Þekkingarnets Þingeyinga. Árið 2019 gerðu þau samning um Fræðslustjóra að láni þar sem markmikið var að setja fræðslu starfsmanna í markvissan farveg, bæta gæði vöru og þjónustu og auka starfsánægju starfsfólks.
Stjórnendur Jarðbaðanna hafa einnig hvatt erlent starfsfólk í gegnum árin til að sitja almenn íslenskunámskeið Þekkingarnetsins og hefur þátttaka í þeim verið með ágætum. Með stækkun Jarðbaðanna sem vinnustaðar, er ljóst að þátttaka mun aukast verulega og að sögn Ragnhildar mun vinnustaðurinn horfa enn frekar til einkanámskeiða, eins og kostur er.
Frekari upplýsingar um fyrirtækjaþjónustu Þekkingarnetsins má finna hér en einnig má senda fyrirspurnir á verkefnastjóra fyrirtækjafræðslu:
Hilmar Valur – hilmar@hac.is
Ingibjörg – ingibjorg@hac.is
Hér eru nokkrar skemmtilegar umsagnir frá þátttakendum á sérsniðna námskeiðinu fyrir starfsfólk Jarðabaðanna:


