HSN – Skyndihjálp 12 klst

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp s.s. almenning, sjálfboðaliða í skyndihjálparhópum Rauða krossins og nemendur sem fá einingu fyrir að taka skyndihjálparnámskeið. 

Markmið: 

  • Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.  
  • Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka. 

Viðfangsefni 

  • Kynning; hvað er skyndihjálp? 
  • Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar. 
  • Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp. 
  • Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi. 
  • Skyndihjálp:  
  • Áverkar; innvortis- og útvortis blæðingar, sár, brunasár, áverkar á höfði, hálsi eða baki, áverkar á beinum, vöðvum eða liðum, eitranir hitaslag/hitaörmögnun og ofkæling.  
  • Bráð veikindi; brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi, heilablóðfall, flog, sykursýki og öndunarerfiðleikar (astmi). 
  • Skyndihjálp framhald; nánari líkamsskoðun, eitrun, blóðnasir, lost, sár og sáraumbúðir, raflost, höfuðáverkar, tannáverkar, skorðun á hrygg, áverkar á brjóstkassa og kvið, vöðvakrampar, sýklasótt, yfirlið og spelkun útlima. 

Fræðsluefni 

Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn á Íslandi. 

Inntökuskilyrði 

Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst. 

Námsmat 

Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi en þátttakendum stendur það þó til boða í lok námskeiðs. 

Viðurkenning 

Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár. 

Efnisatriðin eru viðbót fyrir 4 klst. námskeið. 

  • Eitranir 
  • Hitaslag / hitaörmögnun og ofkæling 
  • Lost 
  • Blóðnasir 
  • Sár og sáraumbúðir 
  • Raflost 
  • Höfðuáverkar   
  • Tannáverkar 
  • Skorðun á hyrgg 
  • Áverkar á brjóstkassa og kvið 
  • Vöðvakrampar 
  • Sýklasótt   
  • Yfirlið 
  • Spelkun útlima   

Tímasetning nánar auglýst síðar