HSN – Samþykkt reikninga í Orra

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).   

Námskeiðið er ætlað þeim sem bera ábyrgð á samþykkt reikninga í Orra og vilja öðlast betri yfirsýn yfir ferlið eða þurfa á upprifjun að halda.

Farið verður yfir helstu aðgerðir við meðhöndlun reikninga, þar á meðal áritun, samþykkt, samþykkt með skýringu, höfnun og áframsendingu reikninga. Einnig verður farið yfir uppsetningu orlofsreglna, skoðun bókhaldsupplýsinga og eldri reikninga ásamt notkun Oracle appsins í snjallsíma.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur verði öruggari í notkun Orra og geti sjálfstætt unnið með og samþykkt reikninga.

Tími: 23. sept. kl 12:15-13:00

Leiðbeinandi: Harpa Sif Jónsdóttir