Kraftur, hugmyndir og ný tengsl á HönnunarÞingi 2026

Orkan var ekki bara viðfangsefnið á HönnunarÞingi 2026 dagana 25.-26. september, hún var áþreifanleg á Stéttinni, sem var þéttsetin. Líkt og fyrri ár fylltist Stéttin af fólki sem kom saman til að hlaða batteríin, deila hugmyndum, miðla reynslu og ræða tækifærin sem felast í samspili hönnunar, nýsköpunar og orku.

Dagskráin spannaði allt frá grundvallarspurningunni Hvað er orka? sem Ottó Elíasson tók fyrir, yfir í framtíðarsýn um hönnun, auðlindir og byggingar þar sem mæðginin Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson hjá s.ap arkitektum leiddu gesti inn í heim Lavaforming. Þess á milli var farið um víðan völl þar sem orkan birtist í ólíkum myndum; í jörðinni, líkamanum, atvinnulífinu, tækninni og jafnvel líka í krókódílum.

Jarðvarmi, fiskeldi, gagnaver, orkuskipti, auðlindanýting, eldblómaupplifun og falin orka, voru meðal umræðuefna. Einnig var fjallað um framtíðarsýn iðnaðarsvæðisins á Bakka, glatvarma og nýtingu hans, bindingu kolefnis, handverk, veltu og virði. Ef einhver var í þeirri trú fyrir þingið að orka væri bara rafmagn eða að samsetning erinda væri ekki alveg skýr miðað við þema Þingsins, þá víkkaði skilningurinn og myndin varð skýrari á HönnunarÞinginu sjálfu.

Aðgengi hefur frá upphafi verið mikilvægur hluti HönnunarÞings. Í ár fékk túlkunin hins vegar liðsauka þegar gervigreind tók við þýðingum af íslensku yfir á ensku í rauntíma. Lausnin virkað vel, stóð sig reyndar með prýði og nú bíða skipuleggjendur spenntir eftir uppfærslu sem vonandi gerir einnig kleift að þýða erindi af ensku yfir á íslensku.

Þegar dagskránni á Stéttinni lauk var enn töluverð orka eftir á tankinum. Bæði á föstudag og laugardag færðist vettvangur HönnunarÞings í viðburðasal Húsavík öl og orkustigið hækkaði jafnvel örlítið með því að bjóða upp á frumkvöðlaflumbru, orku karaoke og orkupitch og þar hélst spennan fram á kvöld. Lokaviðburðir HönnunarÞings fóru annars vegar fram í GeoSea, Eldblóma Explosion Event, og hins vegar á Húsavík Öl, þar sem fram fór lokapartý HönnunarÞings með færeysku þema undir stjórn Hugskotsins og Maria Fagranes frá Færeyjum.

Að HönnunarÞingi stendur Hraðið, miðstöð nýsköpunar á Húsavík, með vöruhönnuðinn Stefán Pétur Sólveigarson í fararbroddi. Með viðburðinum er meðal annars leitast við að opna augu fólks fyrir þeim möguleikum sem felast í því að starfa við hönnun og skapandi greinar um allt land. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) eru stærsti samstarfsaðili verkefnisins. Veitingastaðir og kaffihús á Húsavík tóku þátt í viðburðinum með því að bjóða nýja rétti á matseðli í tilefni af þinginu eða afsláttarkjör fyrir gesti HönnunarÞings. Húsavík öl varð í fyrsta skipti hluti af vettvangi HönnunarÞingsins og líkt og fyrri ár voru ljósin kveikt í Verbúðinni þar sem hönnun, list og orka mættust í sýningum og pop-up verslunum.

Hraðið vill færa öllum fyrirlesurum, kennurum og nemendum Listaháskóla Íslands, þátttakendum, samstarfsaðilum og gestum kærar þakkir fyrir að leggja til orku sína á HönnunarÞinginu 2026. Árangurinn verður til þegar ólíkir straumar mætast og mynda ný tengsl, ný verkefni og nýjar hugmyndir.

Við hlökkum nú þegar til að kveikja nýja neista á HönnunarÞingi árið 2027 þegar nýtt þema tekur við.