Skyndihjálp 4 klst

Skyndihjálp 4 klst.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Viðfangsefni:
Kynning; hvað er skyndihjálp?
Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Skyndihjálp; stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall.

Fræðsluefni
Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn á Íslandi.

Inntökuskilyrði
Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst.

Námsmat
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi.

Viðurkenning
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu.
Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

Efnisatriði
Fjögur skref skyndihjálpar
Tryggja öryggi á vettvangi
Meta ástand slasaðra eða sjúkra
Sækja hjálp
Veita skyndihjálp
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð
Að athuga viðbrögð, opna öndunarveg og athuga öndun
Hjartahnoð og blástursaðferð(endurlífgun)
Sjálfvirkt hjartastuð (notkun AED tækja)
Aðskotahlutur í öndunarvegi
Skyndihjálp og áverkar
Innvortis- og útvortis blæðingar
Bruni og brunasár,
Áverkar á höfði, hálsi eða baki
Skyndihjálp og bráð veikindi
Brjóstverkur
Bráðaofnæmi
Heilablóðfall
Flog
Sykursýki
Öndunarerfiðleikar
Sálrænn stuðningur
Streita í neyðartilfellum
Tilfinningaleg viðbrögð eaðsetningtir að hafa veitt skyndihjálp
Sálrænn stuðningur

Staðsetning: Stéttin, Húsavík

Tímasetning: 02.11. og 03.11.2026 kl 9-13

Verð: 16.900