Viltu taka prófin heima?

Nú fer að líða að uppáhaldstíma allra námsmanna en það er prófatíðin. Jólaprófin nálgast óðfluga og við minnum á þjónustu okkar við námsmenn, en við tökum á móti öllum sem vilja koma í fjarpróf til okkar allt árið um kring. Þau sem vilja nýta sér að taka próf í heimabyggð byrja á að hafa samband við sinn skóla og óska eftir fjarprófi. Skólinn hefur síðan samband við okkur og við göngum í málið. Boðið er upp á prófaðstöðu og þjónustu á sex stöðum í Þingeyjarsýslum, Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Húsavík, Laugum og í Mývatnssveit. Á þeim stöðum þar sem ekki er mönnuð starfstöð reynum við eftir fremsta megni að koma til móts við óskir námsmanna. Við minnum námsmenn á að senda okkur línu tímanlega um próf svo við getum veitt sem besta þjónustu. Prófaþjónustan okkar er námsmönnum að kostnaðarlausu. Verið öll velkomin til okkar í próf.