Nýskipað Fjölmenningarráð SSNE kom saman til síns fyrsta fundar miðvikudaginn 4. nóvember síðastliðinn. Fundurinn fór fram í fjarfundi þar sem lagður var grunnur að samstarfi næstu missera og farið yfir verkefni sem framundan eru á sviði fráðsins.
Fjölmenningarráð SSNE er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra um málefni íbúa af erlendum uppruna. Markmið ráðsins er meðal annars að auka vægi fjölmenningar í landshlutanum, efla samráð og stuðla að því að sjónarmið og hagsmunir erlendra íbúa fái aukið vægi í samfélaginu. Ráðið hefur jafnframt það hlutverk að styðja við samstarf sveitarfélaganna, meðal annars á sviði stefnumótunar, upplýsingagjafar og móttöku nýrra íbúa.
Á fundinum kynnti Heiðar Hrafn Halldórsson, verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga, áhersluverkefnið Frá móttöku til inngildingar, sem er tveggja ára verkefni sem miðar að því að styðja sveitarfélög á Norðurlandi eystra við að efla inngildingu erlendra íbúa og bæta aðgengi þeirra að upplýsingum, þjónustu og samfélagslegri þátttöku.
Verkefnið byggir á rannsókninni Í átt að inngildingu: Viðtalsrannsókn meðal erlendra íbúa á Norðurlandi eystra, sem þær Ingibjörg Benediktsdóttir og Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir unnu á vegum Þekkinganetsins. Í rannsókninni var rætt við 30 einstaklinga frá 18 löndum um reynslu þeirra af búsetu á svæðinu, meðal annars hvað varðar þjónustu, upplýsingagjöf og samfélagsþátttöku. Niðurstöðurnar benda til þess að þótt flestir þátttakendur séu virkir á vinnumarkaði eigi margir erfitt með að mynda félagsleg tengsl, nálgast réttar upplýsingar og hafa áhrif í nærsamfélaginu.
Í framhaldi rannsóknarinnar vann Ingibjörg handbókina Í átt að inngildingu, sem hefur að geyma hagnýtar leiðbeiningar fyrir sveitarfélög og þjónustuaðila um hvernig megi stuðla að aukinni inngildingu og bættri þjónustu við íbúa af erlendum uppruna. Rannsóknin og handbókin mynda þannig mikilvægan þekkingargrunn fyrir áhersluverkefnið, þar sem markmiðið er að færa niðurstöður rannsókna yfir í raunhæfar aðgerðir í samstarfi við sveitarfélögin.
Auk Heiðars sátu fundinn fyrir hönd Þekkinganets Þingeyinga þau Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir og Kjartan Páll Þórarinsson.
Fyrsti fundur nýskipaðs ráðs fór vel fram og ríkti góður andi meðal fundarfólks. Fram kom almenn jákvæðni gagnvart samstarfinu og þeim tækifærum sem felast í sameiginlegri vinnu að fjölmenningarmálum á Norðurlandi eystra.