Ungbarnasund er án efa krúttlegasta námskeiðið okkar en við bjóðum upp á það á Þórshöfn á mánudögum í nóvember. Átta kríli á aldrinum 5 mánaða til tæplega eins árs eru skráð til leiks að þessu sinni og skemmtu sér vel í lauginni með foreldrum sínum í fyrsta tímanum þar sem sex upprennandi sundkappar mættu. Eins og gengur settu veikindi strik í reikninginn en vonandi geta sem flest mætt í annan tímann sem er í dag.
Ef þið hafið hugmynd að námskeiði þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur á hac@hac.is eða á samfélagsmiðlum.