Viltu læra eitthvað alveg nýtt og geta gefið einstaka gjöf um jólin
Gefðu jólakortinu þínu persónulegt og handgert yfirbragð á vinnustofu Vaivu hjá Studio Vast.
Vaiva hefur hannað fjölda vandaðra og vinsælla tækifæriskorta sem finna má í verslunum um land allt.
Á námskeiðinu fær þú innsýn inn í hönnun korta, skoðar ýmsar útfærslu leiðir og prófar að skapa einstök jólakort fyrir þá sem þér þykir vænt um.
Á staðnum verður í boði allskonar blönduð tækni eins og litir, pennar, vatnslitir og fólíur. Einnig færð þú tækifæri til að prófa að skrautrita með brush penna á kortin.
Huggulegt en gagnlegt námskeið fyrir alla áhugasama.
Verð 16.400 kr.
Vinsamlega athugið að hægt er að sækja um endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögunum.