Vel heppnuð norræn ráðstefna um nám í atvinnulífinu og starfsdagur Símenntar

Á dögunum sótti starfsfólk símenntunarsviðs Þekkingarnetsins samnorrænu ráðstefnuna Work, Learn, Evolve sem haldin var í Reykjavík á vegum Norræns samstarfs um símenntun (NLL) og fleiri samstarfsaðila. Um 170 þátttakendur frá sjö löndum komu saman til að ræða nám á vinnustað og mikilvægi símenntunar í síbreytilegu atvinnulífi.

Á ráðstefnunni var meðal annars fjallað um áhrif gervigreindar, stafrænnar þróunar og breyttra færniþarfa á vinnumarkaðinn. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi náms sem á sér stað í daglegum störfum, meðal annars í gegnum samvinnu, reynslu og lausn verkefna. Varpað var ljósi á hvernig vinnustaðir geti skapað betri aðstæður til náms og hvernig símenntun geti orðið eðlilegur hluti atvinnulífsins á tímum samfélagslegra breytinga.

Daginn eftir tók starfsfólk Þekkingarnetsins þátt í starfsdegi Símenntar, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á Íslandi. Þar var farið yfir stöðu og þróun framhaldsfræðslunnar, kynnt nýsköpunar- og þróunarverkefni símenntunarmiðstöðva og fjallað um hagnýta notkun gervigreindar í starfi. Þá gafst þátttakendum tækifæri til að ræða sameiginlegar áskoranir, miðla reynslu og skoða tækifæri til frekara samstarfs.

Dagarnir tveir voru gagnlegur vettvangur fyrir faglega þekkingarmiðlun og tengslamyndun og gáfu starfsfólki Þekkingarnetsins innsýn í nýjar áherslur og þróun á sviði fullorðinsfræðslu og símenntunar.