Ráðgjafi í Gíg, Þingeyjarsveit 18. nóvember

Hvað getur náms- og starfsráðgjöf gert fyrir þig?
Ertu að velta fyrir þér námi, raunfærnimati, starfi eða næstu skrefum?

Hjá Þekkingarnetinu geturðu meðal annars fengið:

  • Upplýsingar um nám og störf
  • Áhugasviðsgreiningu og aðstoð við náms- og starfsval
  • Aðstoð við að greina styrkleika, færni og möguleika
  • Stuðning við markmiðasetningu og áætlanagerð fyrir nám og starfsþróun
  • Leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi, glósugerð og prófundirbúning
  • Aðstoð við að takast á við hindranir í námi, svo sem prófkvíða eða lesblindu
  • Ráðgjöf við gerð ferilskrár (CV) og atvinnuumsókna
  • Hvatningu og stuðning til símenntunar
https://naestaskref.is/is

,,Tilgangur ráðgjafarinnar er ekki aðeins að styðja fólk við að taka ákvarðanir, heldur að opna augu þess fyrir því að það hefur fleiri möguleika en það heldur.” -Þorbjörg Arna

Þekkingarnetið býður alla almenna náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga, atvinnuleitendur, háskólanema og alla aðra sem þarfnast leiðsagnar varðandi nám, störf, raunfærnimat og áhugasvið. Í ráðgjafarteymi Þekkingarnetsins starfa Þorbjörg Arna Unnsteinsdóttir og Guðrún Helga Ágústsdóttir náms- og starfsráðgjafi.

Þorbjörg Arna ráðgjafi verður í Gíg í Þingeyjarsveit miðvikudaginn 18. nóvember og býður upp á gjaldfrjáls einstaklingsviðtöl fyrir fullorðna milli kl. 10:00–14:00.

Tímabókanir í síma 845 5156 eða á thorbjorg@hac.is
Nánari upplýsingar um þjónustuna má finna á vef Þekkingarnetsins