Engir tveir vinnudagar eru eins hjá Þekkingarnetinu! Á dögunum tók starfsfólk þátt í alþjóðlegu kynningarverkefni Visit Iceland, AI Knittaker, þar sem gervigreind tók að sér fundi á meðan þátttakendur nýttu tímann til að upplifa Ísland og skapa nýjar tengingar.

Við sinnum afar fjölbreyttum verkefnum og nú hefur AI bæst við hæfnisskrána – Authentic Icelandic (Knittaking)! Með prjónum og lopa að vopni og jarm í eyrum, nýttum við tækifærið til að kynna Langanesbyggð og Norðausturland fyrir gestum og áhorfendum víða um heim, einni lykkju í einu.
Verkefnið vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og sýnir vel hvernig skapandi nálgun, ný tækni og íslensk sérkenni geta farið saman við markaðssetningu lands og landshluta. Fyrir Þekkingarnetið var þetta skemmtilegt tækifæri til að taka þátt í óhefðbundnu verkefni og vekja athygli á þeim náttúru- og menningarverðmætum sem Norðausturland hefur upp á að bjóða.
Hér hefur Christina komið sér vel fyrir í fjárhúsunum sínum að prjóna skilaboð fundarins sem hún sat á vegum Íslandsstofu.