Stóriðjuskóli PCC – útskrift

Í gær var mikill gleðidagur hjá Þekkingarnetinu þegar átta nemendur útskrifuðust úr Stóriðjuskóla PCC.

Í gær var mikill gleðidagur hjá Þekkingarnetinu þegar átta nemendur útskrifuðust úr Stóriðjuskóla PCC. Þetta er í fyrsta skipti sem Þekkingarnetið kennir þessa 400 klukkustunda námsleið. Kennsla hófst í byrjun haustannar 2024. Alls hófu 15 nemendur námið, en eins og alþjóð veit hefur ýmislegt gengið á hjá PCC Bakka á undanförnum misserum og stór hluti nemendahópsins því miður misst vinnu sína hjá fyrirtækinu.

Þau átta sem útskrifuðust í gær hafa mörg hver misst vinnuna sína, en ákváðu engu að síður að klára námið, sem við erum afar ánægð með og stolt af.

Kennslan fór að langmestu leyti fram á Stéttinni, en einnig í verksmiðjunni úti á Bakka. Kennt var á miðvikudögum frá kl. 08:00–16:00 í þrjár annir, og verður mikill söknuður af þessum frábæra nemendahópi á Stéttinni.

Þessi námsleið hefur verið mikið lærdómsferli fyrir okkur á Þekkingarnetinu. Alls konar verkefni, bæði krefjandi og lærdómsrík, komu upp á leiðinni. Með mjög nánu og góðu samstarfi við stjórnendur PCC Bakka tókst þó að yfirstíga allar hindranir. Enska er opinbert tungumál hjá PCC Bakka og því fór öll kennsla fram á ensku. Námsleiðin hefur ekki verið kennd áður á Íslandi á ensku, og því þurfti að leggja í mikla vinnu við að útbúa sérsniðið námsefni fyrir starfsemi PCC Bakka. Kennarar okkar eiga mikið hrós skilið fyrir að takast á við þetta verkefni af fagmennsku og metnaði.

Nú vonum við innilega að fari að birta til í starfsemi PCC Bakka og að verksmiðjan nái á nýju ári að komast aftur í fullan rekstur. Við á Þekkingarnetinu erum tilbúin að taka á móti næsta hópi nemenda.

Að lokum viljum við á Þekkingarnetinu þakka stjórnendum PCC Bakka kærlega fyrir frábært samstarf, sem og þessum einstaka nemendahópi. Innilega til hamingju með árangurinn.