Um Þekkingarnetið

Þekkingarnetið er miðstöð símenntunar-, háskólanáms-, rannsókna og nýsköpunar. Stofnunin starfar sem sjálfseignarstofnun sem fjármögnuð er með sjálfsaflafé og rekstrarsamningum við ríkið. Áherslur allra sviða í starfseminni er svæðisbundin þjónusta við atvinnulíf og einstaklinga á víðfemu starfssvæðinu í Þingeyjarsýslum á NA-horni Íslands.

Þekkingarnetið er sameinuð regnhlífarstofnun sem starfrækir undir einni kennitölu ýmsar starfseiningar sem víða annars staðar á landinu eru reknar sjálfstætt. Stofnunin rekur símenntunarmiðstöð, þekkingarsetur sem sinnir rannsóknum og háskólaþjónustu, frumkvöðlasetur og FabLab-smiðju. Í öllum tilvikum er stofunin virkur þátttakandi í samstarfi þessara starfseininga á landsvísu.  

Fyrsti vísir starfsemi Þekkingarnetsins hófst árið 1999 með stofnun símenntunarmiðstöðvar undir nafni Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga. Rannsókna- og háskólaþjónusta hófst árið 2003 með stofnun Þekkingarseturs Þingeyinga, en þessar einingar voru sameinaðar skömmu síðar undir nafni Þekkingarnetsins.  

Þekkingarnetið hefur verið leiðandi í myndun samstarfs stofnana, fyrirtækja og einstaklinga um vinnustaðaklasa á þekkingarsviði. Stofunin leiddi myndun vinnustaðaklasans STÉTTIN á Húsavík og átti virkan þátt í myndun KISTUNNAR á Þórshöfn og GÍGS í Mývatnssveit.