Þekkingarnet Þingeyinga stendur um þessar mundir að verkefninu Þau skilja sem vilja, sem hefur það markmið að efla þátttöku íbúa í samfélaginu með aukinni menningarmiðlun, íslenskunotkun og tengslamyndun. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði SSNE.
Verkefnið byggir á þeirri einföldu hugmynd að skapa fleiri tækifæri fyrir fólk af ólíkum uppruna til að hittast, kynnast og taka virkan þátt í samfélaginu. Áherslan er ekki á viðburði fyrir afmarkaða hópa heldur sameiginlegan vettvang þar sem allir íbúar, nýir sem rótgrónir, geta átt samskipti, myndað tengsl og fundið sér farveg til þátttöku í samfélagslífinu.
Sem hluti af verkefninu stendur til að halda opið hús og kynningardag í byrjun september þar sem félagasamtök, íþróttafélög, menningarstarfsemi og aðrir samfélagsaðilar fá tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir íbúum.
Markmiðið er að skapa líflegan og aðgengilegan viðburð þar sem gestir geta gengið á milli kynninga, spjallað við þátttakendur og fengið innsýn í það fjölbreytta starf sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Slíkur viðburður getur verið fyrsta skrefið fyrir marga til að finna sér ný áhugamál, eignast ný tengsl og verða virkari þátttakendur í samfélaginu.
Þetta er jafnframt frábært tækifæri fyrir félög og samfélagsaðila til að kynna starf sitt, ná til nýrra þátttakenda og sýna þann mikilvæga þátt sem þau gegna í samfélaginu. Oft þarf ekki nema eitt gott samtal til að kveikja áhuga hjá einhverjum á að taka þátt, gerast sjálfboðaliði eða hefja nýtt áhugamál.
Þekkingarnet Þingeyinga vill því hvetja sem flest félagasamtök og samfélagsaðila til að vera með. Kynning getur verið með ýmsum hætti, til dæmis með bás, kynningarefni, sýnikennslu, stuttri uppákomu eða einfaldlega góðu spjalli við gesti. Það þarf ekki mikið, það mikilvægasta er að segja frá starfseminni og bjóða fólk velkomið. Við tökum fagnandi á móti öllum hugmyndum um hvernig best sé að kynna starfsemina.
Stefnt er að því að viðburðurinn fari fram fimmtudaginn 3. september síðdegis, þegar starf félagasamtaka er að fara af stað á ný eftir sumarfrí.
Við vonumst til að sem flest taki þátt og hjálpi okkur að skapa fjölbreyttan, lifandi og skemmtilegan viðburð sem styrkir samfélagið og auðveldar fólki að finna sér vettvang til þátttöku. Nú þegar hafa fjölmörg félagasamtök og samfélagsaðilar skráð sig til leiks og við vonum að enn fleiri sláist í hópinn. Saman getum við sýnt hversu öflugt og fjölbreytt samfélagið okkar er.
Áhugasöm eru hvött til að hafa samband við Þekkingarnet Þingeyinga og skrá þátttöku sem fyrst á ingibjorg@hac.is eða hac@hac.is.
Við hlökkum til að vinna með ykkur að skemmtilegum og gefandi degi fyrir allt samfélagið.