Fimmtudaginn 3. september var haldið Opið hús á Stéttinni á Húsavík þar sem aðilar í félags-, menningar- íþrótta og tómstundarstarfi kynntu starfsemi sína fyrir íbúum.

Alls sóttu um hundrað gestir viðburðinn. Þeim gafst kostur á að ganga á milli kynninga, spjalla og kynna sér þau fjölmörgu tækifæri sem standa til boða í samfélaginu. Fyrir marga var þetta einnig tækifæri til að finna ný áhugamál, fá upplýsingar um starfsemi sem vakti áhuga þeirra eða skrá sig til þátttöku.

Fjölbreytnin þátttakenda var eftirtektarverð. Meðal þeirra voru íþróttafélög, menningarhópar, félagasamtök og ýmsir aðrir aðilar í samfélaginu sem allir eiga sinn þátt í að gera samfélagið öflugt og líflegt. Kynningardagurinn gaf góða mynd af því hversu margt er í boði fyrir fólk á öllum aldri.

Viðburðurinn er hluti af verkefninu Þau skilja sem vilja, sem hefur það að markmiði að efla þátttöku í samfélaginu, styrkja tengsl milli íbúa og skapa fleiri tækifæri fyrir fólk til að hittast og kynnast.

Þekkingarnet Þingeyinga þakkar öllum þeim félögum, samtökum og einstaklingum sem tóku þátt í deginum. 

Völsungur, Leikfélag Húsavíkur, Kiwanisklúbburinn Skjálfandi, Oceans mission, Rauði krossinn, Björgunarsveitin Garðar, Unglingadeildin Náttfari, Móðurmál á Norðurlandi,Skákfélagið Goðinn, Rotaryklúbbur Rótarskot í norðri, Félag hundaeigenda á Húsavík, Félag eldri borgara á Húsavík, 640 MTB – hjólaklúbbur, Soroptimistar, Smiðjan, Crossfit & Hyrox, husavik.com, landkönnunarhátíð, Handverkshópur, Fjalakötturinn, Norðurþing – félagsþjónusta, Fjölmenningarfulltrú Norðurþings, Norðurþing – íþrótta og tómstundasvið, Stem – Húsavík, Spirit North, FabLab, Fum&fok, Hagsmunasamtök barna á Húsavík.

Viðburðinn var styrktur af Uppbyggingasjóði Sóknaráætlunar SSNE og Landsvirkjun. 

https://www.vikubladid.is/is/moya/news/allt-undir-solinni-a-stettinni