Leikir sem leið til nýsköpunar

Fyrsta leikjadjammið á Húsavík

Það var sannkölluð leikja- og sköpunargleði á Stéttinni helgina 19.–21. september þegar Leikjadjamm Húsavíkur fór fram á Stéttinni. Leikjadjammið tengist alþjóðlegu samstarfsverkefni á norðurslóðum þar sem meðal annars er horft til þess hvernig leikjafræði og leikjahönnun geta skapað ný tækifæri í dreifbýlum samfélögum. Með viðburðinum var leitast við að sýna hvernig leikjahugsun getur verið öflugt og skapandi verkfæri fyrir fólk úr ólíkum greinum.

Sögur, hönnun, forritun og staðbundin þekking geta þannig blandast saman og orðið að nýjum hugmyndum og lausnum. Þátttakendur fengu innblástur frá fólki sem starfar á ólíkum sviðum. Meðal annars var fjallað um gagnvirkar upplifanir og sýndarveruleika, sagnalist og nærumhverfi, tölvuleikjagerð og hvernig hægt er að nýta raunveruleg verkefni úr samfélaginu sem efnivið í leiki.

Að viðburðinum stóðu Hraðið miðstöð nýsköpunar, Háskóli Íslands, STEM Ísland og Game Makers Iceland. Þátttakendur voru á ólíkum aldri og með fjölbreyttan bakgrunn, allt frá grunnskólanemum til doktorsnema.
Þema Leikjadjammsins var hvalir, hafið og Húsavík og þátttakendur voru hvattir til að sækja innblástur í nærumhverfið. Úr varð fjölbreytt flóra leikja þar sem staðbundin þekking, sögur og hugmyndir fengu nýtt líf. Þátttakendur mynduðu fimm teymi sem unnu saman að því að þróa leiki frá fyrstu hugmynd að spilanlegri frumgerð á aðeins tveimur dögum.

Stefán Pétur, nýsköpunarstjóri Hraðsins og vöruhönnuður, var mentor og fylgdi þátttakendum eftir í gegnum sköpunarferlið. Hann miðlaði af reynslu sinni af því að þróa hugmyndir frá fyrstu kveikju yfir í fullmótaða afurð. Hann gaf þátttakendum meðal annars innsýn í vinnu sína við hönnun borðspils sem hann þróaði ásamt Sól Hrafnsdóttur grafískum hönnuði, með innblæstri úr norrænni goðafræði.

Að mati aðstandenda var ánægjulegt að sjá hversu hratt þátttakendur fóru frá hugmynd að frumgerð. Með því að vinna saman í teymum sameinuðust ólíkir styrkleikar þátttakenda og á aðeins tveimur dögum urðu til leikir sem tengdust Húsavík, hafinu og hvölunum með ólíkum og skapandi hætti. Reynslan af helginni verður nýtt áfram við þróun leikjadjamms og sambærilegra skapandi verkefna og vonandi verður hægt að endurtaka leikinn áður en langt um líður.