Opnað hefur verið fyrir skráningar í Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni Íslands, þar sem tvær milljónir króna eru í verðlaun. Af því tilefni verður haldinn opinn kynningarviðburður á Akureyri fimmtudaginn 19. nóvember.
Gulleggið er frábært tækifæri fyrir einstaklinga og teymi til að þróa viðskiptahugmyndir, afla sér þekkingar og mynda tengsl innan nýsköpunarumhverfisins. Ekki er nauðsynlegt að vera með fullmótaða viðskiptahugmynd til að taka þátt og hægt er að skrá sig bæði með og án hugmyndar.
From idea to reality
Við hjá Hraðinu hvetjum öll þau sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi til að kynna sér keppnina og nýta sér þau tækifæri sem hún býður upp á.
Hjá Hraðinu veitum við frumkvöðlum stuðning við mótun hugmynda, hönnun og vöruþróun. Í Fab Lab smiðjunni okkar er jafnframt að finna glæsilega aðstöðu og öflugan tækjakost þar sem hægt er að gera tilraunir, þróa lausnir og smíða frumgerðir með aðstoð starfsfólks.
Hvort sem þú ert með hugmynd sem hefur lengi blundað í þér eða ert þegar komin af stað með verkefni, getum við aðstoðað þig við að taka næstu skref.
Kynningarviðburður á Akureyri
KLAK – Icelandic Startups, Drift EA, Háskólinn á Akureyri og Hraðið – miðstöð nýsköpunar standa saman að opnum kynningarviðburði þar sem gestum gefst tækifæri til að fræðast um Gulleggið, fyrirkomulag keppninnar og kynnast fólki úr nýsköpunarumhverfinu.
- Location: Drift EA, Strandgata 1, Akureyri
- Date: Fimmtudagurinn 19. nóvember
- Time: Kl. 16:00–18:00
Léttar veitingar verða í boði og öll áhugasöm eru hjartanlega velkomin.
Skráðu þig á kynningarviðburðinn hér.
Allar stórar hugmyndir byrja einhvers staðar – kannski byrjar þín hjá okkur í Hraðinu.