Góðir gestir á vegum Háskólans á Akureyri heimsóttu okkur á Stéttina í blíðskaparveðri síðastliðinn miðvikudag. Um 40 fulltrúar frá evrópskum háskólum fengu að fræðast um  nýsköpunarvegferð Þekkingarnetsins.  

Gestirnir voru sérstaklega hrifnir af því hversu greitt aðgengi íbúar eiga að FabLabinu okkar.  Víða þarf að kaupa sérstaka aðild að Fab Lab smiðjum áður en hægt er að prófa sig áfram, læra, gera og græja! Samfélagsleg nálgun er eitt grunnstefið í öllu sem er gert í Fab Lab Húsavík. 

„Það er alltaf gaman að taka á móti fólki og segja frá þessari nýsköpunarvegferð á norðurlandi eystra sem við erum stolt af. Svona heimsóknir geta gefið tækifæri á samstarfi í framtíðinni.“

Stefán Pétur – nýsköpunarstjóri Hraðsins

Tengslin við skólakerfið eins og við búum að á Húsavík er nokkuð sem ekki er sjálfgefið.  Öll skólastig heimsækja Fab Labið okkar reglulega enda er markmið Fab Labsins á Húsavík að styðja við menntastofnanir í nærsamfélaginu. Flottir frumkvöðla-  og nýsköpunarviðburðir í ekki stærra sveitarfélagi vöktu einnig athygli.

Eftirtekt vakti hversu vel Fab Labið er búið tækjum og tólum. Fab Labið getur unnið með öll efni og meira segja er hægt mæta og meitla nafnið sitt í stein.


Nánari upplýsingar um Fab Lab Húsavík og stundöflu má nálgast here.