Jólaandi og skrautskrift á Gíg

Í gærkvöldi var haldið námskeið í jólakortagerð með áherslu á skrautskrift. Leiðbeinandi var Vaiva Straukaite frá Studio Vast, sem kynnti fyrir þátttakendum fjölbreyttar leiðir til að vinna með letur, línur og form í kortagerð.

Á námskeiðinu fengu þátttakendur að kynnast ólíkum tegundum af pennum og málningu og skoða leturgerðir frá nýju sjónarhorni. Unnið var með einfaldar aðferðir til að skapa persónuleg jólakort þar sem handskrift og skreytingar fá að njóta sín.

Kvöldið einkenndist af góðum vinnuanda og fóru þátttakendur heim með eigin jólakort og nýjar hugmyndir sem nýtast vel á aðventunni sem og á vormánuðum.