Vettlingaprjón í Mývatnssveit

Enginn hægri og vinstri vettlingur, heldur vettlingar sem passa jafnt á hægri og vinstri hönd.
Við ætlum að prjóna einfalda vettlinga með útaukningu fyrir þumal í hlið vettlingsins og við prjónum vettlingana á hringprjóna með aðferðinni Magic Loop.
Magic Loop (töfralykkja) er prjónaaðferð sem gerir þér kleift að prjóna í hring þótt ummálið sé mjög lítið (t.d. sokka, húfur eða ermar) með því að nota langan hringprjón ca 80 til 100 cm með mjúkri snúru) í stað sokkaprjóna.
Ef þú kannt að fitja upp og prjóna slétt og brugðið er tilvalið bæta við sig þekkingu og prjóna hlýja vettlinga fyrir þig eða aðra.

Stutt og gott námskeið fyrir öll sem vilja læra að prjóna einfalda vettlinga.
Laugardaginn 6. febrúar klukkan 10-15, með hádegishléi í Gíg gestastofu, Mývatnssveit.

Verð: 12.000 kr
Skráningarfrestur er til kl. 16 þriðjudaginn 2. febrúar.
Lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.